|
Kæru félagar,
|
 Gissur Guðmundsson |
Íslenskt eldhús er eitt af því sem við öll viljum sjá verða að veruleika og að við sameinumst um hvað skal skilgreina sem Íslenskt eldhús, við höfum nú sett inn tengil á heimasíðu okkar til að gefa þeim tækifæri á sem vilja leggja eitthvað til málanna að skrifa okkur pistil sem við munum síðan birta hér á heimasíðu okkar, þetta viljum við gera til að gefa sem flestum tækifæri á að tjá sig um Íslenskt eldhús og ákvað hátt þið viljið sjá Íslenskt eldhús í framtíðinni og markaðsett fyrir erlenda gesti.
Ég vil því hvetja ykkur sem hafið áhuga á þessu viðfangsefni að senda okkur pistil. Margir hafa unnið gott starf við undirbúning á þessu verkefni og vil ég endilega benda ykkur á að lesa skýrslu sem unnin var af Ísólfi Gylfa Pálmasyni alþingismanni, Hrönn Greipsdóttur Hótelstjóra og Sigmari B. Hauksyni verkefnastjóra að beiðni Tómasar Inga Olrich alþingismanns. Einnig eru Samtök Ferðaþjónustunnar með á prjónunum að skipuleggja frekari áframhald á þessari vinnu og viljum við endilega styðja við bakið á því, teljum að matreiðslumenn okkar hafi mikið til málanna að leggja. Gaman væri ef félagar gætu sent inn stuttar sögur eða greinar sem þeir hafa komist yfir frá sínum bæjarfélögum bæði í gegnum gamlar matreiðslubækur, blöð og ekki síst ef mamma og pabbi, afi og amma hafa sagt sögur frá þeirra tíma um mat og matarvenjur. Með von um góð viðbrögð og stuðning við verkefnið.
Gissur Guðmundsson
Fleira tengt efni:
Hrifinn af Íslenska lambakjötinu
Bað mömmu um leynitrixin...
Íslenskt Eldhús - Í orði og á borði
|