..:: Nýjustu uppskriftirnar
Þér er velkomið að deila uppáhalds uppskriftunum þínum með okkur.
Smellið hér
Skráðir notendur geta sett inn nýjar uppskriftir, haldið utan um sínar uppáhalds uppskriftir omfl.
|
|
|
Fréttir
|

|
7.2.2012 23:09:28 |
|
Tilboðsblaðið fyrir febrúar er komið....
Töfrasprotar, saladvindur, þrýstipottar, áleggshnífar ofl. á frábæru verði. Alltaf eitthvað nýtt hjá strákunum. Verið velkomin í heimsókn. Opið alla virka daga frá 9-17. Sími 540-3550. |
|
|
|
|
7.2.2012 23:04:34 |
|
Hótel Rangá hlýtur viðurkenningu sem besta sveitahótel í Evrópu 2011
Hótel Rangá fékk nýverið viðurkenningu sem besta sveitahótelið í Evrópu árið 2011. Þar að auki var það valið eitt af þeim hótelum sem helst má mæla með í hópi fjölda úrvalshótela í Evrópu.
Það er fyrirtæki í samstarfi við Bloomberg sjónvarpsstöðina sem stendur að verðlaununum. Í fréttatilkynningu frá hótelinu segir að Friðrik Pálsson fór til London til að taka við verðlaununum og flutti í leiðinni erindi á ráðstefnu sem haldin var í tengslum við verðlaunahátíðina. |
|
|
|
|
6.2.2012 21:55:15 |
|
35. WACS þingið haldið í Daejeon í Suður- Kóreu 1. - 5. maí 2012
Eins og flestir vita þá hefur Alheimssamtökunum verið stjórnað af Íslendingum síðastliðinn 4 ár eftir að Gissur Guðmundsson var kosinn Forseti, Hilmar B. Jónsson varaforseti og Helgi Einarsson ritari á þinginu í Dubai 2008.
Nú er það kjörtímabil á enda, en þeir hafa ákveðið að bjóða sig fram aftur til starfa fyrir samtökin næstu 4 árin og hafa víðtækan stuðning í dag við því, en skjótt skipast veður í lofti þannig að það er ekkert fast í hendi fyrr en kosningin hefur farið fram og niðurstaðan kynnt opinberlega. |
|
|
|
|
6.2.2012 21:51:20 |
|
Uppskrift: Perur Belle Héléne - Einn frægasti eftirréttur í heimi

Perur Belle Héléne er sennilega frægasti eftirréttur þar sem perur koma fyrir sem eitt af hráefnunum. Rétturinn var skapaður um 1864 af Auguste Escoffier faðir franska eldhússins og sótti hann hugmyndina á nafninu í óperuna La Belle Héléne eftir Jacques Offenbach. |
|
|
|
|
6.2.2012 21:19:20 |
|
Ertu rófulaus við björgum því - Ný heimasíða rofa.is
Félag gulrófnabænda hefur opnað nýja heimasíðu á slóðinni rofa.is, en þessi síða er eins og nafnið bendir til um rófuna og vilja gulrófnabændur vekja athygli á og viðhalda þeirri virðingu sem hún hefur og helst efla.
Markmið með heimasíðunni er að auka neyslu rófunnar sem er bæði frábært snakk, full af A og C vítamíni, fitusnauð og þar með grennandi góðmeti. |
|
|
|
|
5.2.2012 18:19:32 |
|
Sæmundur í sparifötunum er í kráamatnum og gerir vel
Svona til að svala forvitni ykkar þá er þetta veitingastaður Kex hostel´s á Skúlagötu gengt Vitatorgi.
Við félagarnir höfðum ákveðið í desember að næst skyldum við heimsækja áðurnefndan stað og upplifa í eigin persónu það sem við höfðum heyrt um staðinn og á miðvikudaginn var vorum við mættir kl 18:00. |
|
|
|
|
5.2.2012 13:50:41 |
|
Öðruvísi: Áttu borð fyrir fjóra við fossinn? Myndir og vídeó
Búgarðurinn Villa Escudero sem staðsettur er í Quezon Province á Filippseyjum býður upp á áhugavert safn, siglingu á bambusfleka, fuglaskoðun og margt fleira.
Á búgarðinum er frekar óvenjulegt veitingahús en það er staðsett við stóran foss sem rennur í gegnum veitingastaðinn, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og vídeó: |
|
|
|
|
5.2.2012 11:21:26 |
|
Innnes býður uppá Auðvelt úr Austrinu
Innnes býður uppá Auðvelt úr Austrinu, við fögnum kínverska nýárinu þ.e ári Drekans og að því tilefni bjóðum uppá valdar vörur frá Blue Dragon á frábæru tilboði ásamt uppskrift af Teriyaki kjúkling með hvítlauksnúðlum.
Allt í uppskriftina bjóðum við uppá. Einnig bjóðum við uppá kaffi og bake off vörur á frábærum verðum. Fyrir þá sem áhuga hafa eigum við til flottan upskriftabækling með frábærum uppskriftum sem gefinn var út af tilefni Ári Drekans. |
|
|
|
|
4.2.2012 09:05:00 |
|
Febrúarfundur KM. Norðurland
Febrúarfundur KM. Norðurland verður haldinn miðvikudaginn 8. febrúar klukkan 18:00 í Verkmenntaskólanum á Akureyri, Matvælabraut.
Dagskrá: |
|
|
|
|
3.2.2012 16:14:01 |
|
Þorrafundur Klúbbs matreiðslumeistara
Þorrafundur KM verður haldin hjá Brynjari & Loga á Höfnina þriðjudaginn 7. febrúar 2012.
Fundurinn hefst að vanda klukkan 18:00
Alsgnægtir þorrans verða á borðum okkar að hætti Vertsins á verði sem verður seint toppað, eða aðeins 2.500,-
Munið hvítan kokkajakka og svartar buxur. |
|
|
|
|
3.2.2012 12:51:08 |
|
Þessir keppa til úrslita um titilinn Matreiðslumann ársins 2012 í Bretlandi
British Culinary Federation ( BCF) hafa kynnt hverjir keppa til úrslita í áðurnefndri keppni.
Þeir tíu sem komust í úrslitakeppnina voru valdir í undanúrslitum sem haldin voru í Háskólanum í Birmingham nú á dögunum, þar sem keppendur þurftu að elda 3ja rétta fyrir tvo, annann úr fiski og/eða skelfiski og aðalrétturinn úr bresku svíni og ábætir að eigin vali. |
|
|
|
Eldri fréttir >> |
|
|
|
Áhugavert:
Sérvefir:




Fróðleikur:




|
|