|
6.9.2010 15:56:47 |
|
Skráning hafin á Súpukeppni Knorr á Matardögum í Smáralind
Keppendur hafa 60 mínútur í eldhúsi til að laga 4 ltr. súpu, eða 3 dómaradiska, einn sýningardisk og fyrir 25 gesti Smáralindar sem fá smakk úr 5 cl glösum.
Súpan verður að innihalda að minnsta kosti tvær KNORR vörur sem hægt er að kaupa í smásölu í verslunum.
Keppendur koma með eigin pott, diska og áhöld.
Knorr skaffar línu úr smásöluvörum í kröftum, kryddpaste og roux, en keppendur koma með garniture, rjóma og annað. |
|
|
|
|
5.9.2010 17:34:28 |
|
Ávarp forseta
Kæru félagar
Ég þakka traustið sem mér var sýnt með því að treysta mér fyrir embætti forseta KM á aðalfundi Klúbbs matreiðslumeistara á Akureyri 8.maí síðastliðinn. Þá vil ég fyrir hönd allra félagsmanna þakka fráfarandi forseta KM Alfreð Ó Alfreðssyni fyrir gott starf í þágu klúbbsins sem og öðrum fráfarandi stjórnarmönnum og bjóða jafnframt nýja stjórnarmenn velkomna.
Það voru merk tímamót í sögu KM þegar ný deild klúbbsins KM Norðurland var formlega stofnuð á aðalfundi í maí síðastliðinn. Vil ég óska Norðlendingum innilega til hamingju með áfangann og bjóða nýja félaga velkomna og hvetja þá sem aðra til að starfa af krafti innan klúbbsins og mæta vel á okkar fundi og viðburði. KM Norðurland á eftir að vaxa og dafna á komandi árum og skila félögunum ánægju og ávinningi af starfinu ef vel er staðið að málum. það er gömul saga og ný að í félagsstarfi sem okkar er bara tekið út af því sem áður hefur verið lagt inn fyrir. |
|
|
|
|
1.9.2010 18:04:23 |
|
Matreiðslumaður ársins 2010
Vegna fjölda áskoranna hefur verið ákveðið að framlengja umsóknarfrestinn fyrir matreiðslumann ársins fram á föstudaginn 3.september. Mánudaginn 6. september verður dómarafundur með keppendum. Stund og staður verður kynnt von bráðar.
Nefnd um matreiðslumann ársins
|
|
|
|
|
1.9.2010 08:22:45 |
|
Fyrirlestur Gert Klötzke á nútíma sænsku Jólahlaðborði
Haldinn miðvikudaginn 25. ágúst 2010 á Hilton Reykjavík Nordica - Svipmyndir og vídeó
Gert var í 2 áratugi yfirþjálfari sænska kokkalandsliðins og lyfti grettistaki á þeim vígstöðum. Hann er núna professor í matreiðslu við Háskólann í Umeá í Svíþjóð, einnig er hann meðlimur af culinary committee hjá WACS alheimsamtökum matreiðslumanna og er mikið í að halda dómaranámskeið víða um heim á vegum samtakanna, einnig er hann yfirþjálfari íslenska kokkalandsliðins og verður fróðlegt að sjá hvernig liðið muni standa sig í Lux í Nóv. |
|
|
|
|
31.8.2010 18:39:17 |
|
Eftirréttur ársins 2010
 Eftirrétta keppnin“ Eftiréttur ársins“ verður haldin laugardaginn 25. September í Vetrargarðinum í Smáralind á Matardögum 2010.
Keppnisrétt hafa þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamning í fyrrnefndum greinum. |
|
|
|
|
26.8.2010 22:21:17 |
|
Matardagar 2010 í Vetrargarðinum
Fyrsta árlega matarhátíð Klúbbs Matreiðslumeistara, Matardagar 2010, verður haldin í Smáralind dagana 23. – 26. september. Á Matardögum verður að finna fjöldan allan af matartengdum viðburðum og skemmtiatriðum auk keppninnar Matreiðslumaður ársins 2010.
Mikið kapp er lagt við að gera Matardaga að gómsætum viðburði sem höfðar til almennings jafnt sem fagmanna. Keppniseldhúsin verða full af lífi alla fjóra dagana og geta gestir Smáralindar fylgst með því sem þar fer fram; allt frá Matreiðslumanni ársins yfir í ýmsar keppnir með léttara ívafi sem höfða til alls áhugafólks um mat – ungra jafnt sem aldinna!
Á næstu dögum verður ítarlegri dagskrá kynnt en hér kemur eithvað sem má búast við á Matardögum 2010. |
|
|
|
|
26.8.2010 17:21:57 |
|
Matreiðslumaður ársins 2010 /// Skráningu lýkur 1.september
Forkeppni fyrir keppnina um Matreiðslumann ársins 2010 verður haldin fimmtudaginn 23. september í Vetrargarðinum í Smáralind
Þar verða valdir fimm keppendur sem fara í úrslitakeppni.
Keppnisrétt hafa þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu og hafa staðfest þátttöku með greiðslu keppnisgjalds kr. 20.000.- fyrir 1. september 2010.
Fimm efstu komast í úrslitakeppnina, ekki eru gefin upp sæti.
Tilkynnt verður samdægurs hverjir komast áfram.
Keppendur hafa 1 klukkutíma til að afgreiða matinn; forrétt og aðalrétt. |
|
|
|
|
24.8.2010 16:27:30 |
|
Septemberfundur KM 2009
Kæru félagar!
Fyrsti fundur starfsársins verður að venju haldinn í húsakynnum Hótel- og Matvælaskólans í MK. fimmtudaginn 9. sept nk.
Á dagskrá er m.a.:
1. Kynning á vetrarstarfinu.
2. Inntaka nýrra félaga
3. Ungliðastarfið
4. Sagt frá skólastarfinu
5. Sagt frá væntanlegu samstarfi KM & RKI
6. Landsliðið
6. Happdrættið
7. Önnur mál
Nemendur skólans munu elda fyrir okkur þetta kvöld og eru félagar hvattir til að mæta og gleyma ekki kokkajakkanum og svörtu buxunum heima.
|
|
|
|
|
24.8.2010 16:11:29 |
|
Sætum bætt við á fyrirlestur Gerts Klötzke á morgun
Höfum nú bætt við sætum á þennan merkilega fyrirlestu, þannig að núna ætti allir sem vilja að komast að. Hvetjum því alla að mæta og hlýða á þessa lifandi goðsögn.
Klúbbur Matreiðslumeistara kynnir fyrirlestur haldinn miðvikudag 25. ágúst klukkan 16:00 með hinum virta sænska matreiðslumeistara Gert Klötzke um klassískt hlaðborð fært í nútímabúning og skammtastærðir. Gert skrifaði bókina "The Swedish smorgasbord - all the Original Recipes in Modern Style" ásamt Niclas Wahlström og hefur bókin fengið frábæra umsögn og verið margverðlaunuð. Í bókinni er sýnt fram á hvernig lækka má verulega hráefniskostnað við klassískt hlaðborð jafnframt því að auka gæðin ! |
|
|
|
|
23.8.2010 22:08:41 |
|
Ert þú áhugasamur ungkokkur?
Auglýsing frá Klúbbi matreiðslumeistara
Nú er komið að því að taka inn nýja félaga í Ungkokka Íslands sem starfa undir Klúbbi matreiðslumeistara.
"Tilgangur félagsins er að efla rótina hjá efnilegum, hugsandi fagmönnum og framtíðarfólki matreiðslunnar á Íslandi. Markmið félagsins eru að skapa góðan grundvöll fyrir því að á næstu árum eigi Ísland eina efnilegustu ungkokka á heimsvísu, sem að skilar sér í hróðri og fagmennsku í matarmenningu á Íslandi."
Stefnt er að stórmóti fljótlega á árinu 2011. Auk þess fá ungkokkar tækifæri á því að vinna með landsliðsmönnunum okkar sem er ómetanleg og dýrmæt reynsla.
|
|
|
|