|
20.8.2010 11:09:14 |
|
Matreiðslumaður Ársins 2010 - Forkeppni
Forkeppni fyrir keppnina um Matreiðslumann ársins 2010 verður haldin fimmtudaginn 23. september í Vetrargarðinum í Smáralind
Þar verða valdir fimm keppendur sem fara í úrslitakeppni.
Fyrirkomulag úrslitakeppni verður kynnt síðar.
Keppnisrétt hafa þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu og hafa staðfest þátttöku með greiðslu keppnisgjalds kr. 20.000.- fyrir 1. september 2010.
Fimm efstu komast í úrslitakeppnina, ekki eru gefin upp sæti.
Tilkynnt verður samdægurs hverjir komast áfram.
Keppendur hafa 1 klukkutíma til að afgreiða matinn; forrétt og aðalrétt. |
|
|
|
|
20.8.2010 11:07:57 |
|
Gert Klötzke með fyrirlestur miðvikudaginn 25. ágúst 2010
Klúbbur Matreiðslumeistara kynnir fyrirlestur haldinn miðvikudag 25. ágúst klukkan 16:00 með hinum virta sænska matreiðslumeistara Gert Klötzke um klassískt hlaðborð fært í nútímabúning og skammtastærðir. Gert skrifaði bókina "The Swedish smorgasbord - all the Original Recipes in Modern Style" ásamt Niclas Wahlström og hefur bókin fengið frábæra umsögn og verið margverðlaunuð. Í bókinni er sýnt fram á hvernig lækka má verulega hráefniskostnað við klassískt hlaðborð jafnframt því að auka gæðin ! |
|
|
|
|
12.8.2010 17:06:15 |
|
Matreiðslumaður Ársins 2010 - Forkeppni
Forkeppni fyrir keppnina um Matreiðslumann ársins 2010 verður haldin fimmtudaginn 23. september í Vetrargarðinum í Smáralind
Þar verða valdir fimm keppendur sem fara í úrslitakeppni.
Fyrirkomulag úrslitakeppni verður kynnt síðar.
Keppnisrétt hafa þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu og hafa staðfest þátttöku með greiðslu keppnisgjalds kr. 20.000.- fyrir 1. september 2010.
Fimm efstu komast í úrslitakeppnina, ekki eru gefin upp sæti.
Tilkynnt verður samdægurs hverjir komast áfram.
Keppendur hafa 1 klukkutíma til að afgreiða matinn; forrétt og aðalrétt. |
|
|
|
|
9.8.2010 19:01:19 |
|
Tveir Íslenskir matreiðslumenn teknir inn í “American Academy of Chefs”
Matreiðslumeistarnir Gissur Guðmundsson forseti alheimssamtaka matreiðslumanna, WACS og Hilmar B. Jónsson varaforseti WACS voru í síðustu viku teknir inn í “American Academy of Chefs” AAC, á þingi “American Culinary Federation” ACF sem haldið var í Anaheim í Kaliforníu.
AAC er næst hæsta virðingarstig sem matreiðslumenn í Bandaríkjunum geta fengið. Það hæsta er “Hall of Fame”
Gissur fékk þessa upphefð sem forseti WACS en Hilmar fyrir að hafa ferðast um Bandaríkin í 21 ár að kenna matreiðslumönnum að elda fisk á vegum Icelandic Seafood Inc áður Iceland Seafood og Samband of Iceland. |
|
|
|
|
5.8.2010 09:17:12 |
|
Ertu á leið til Ítalíu?
Sýningin TriestEspresso verður haldin að venju á Ítalíu og verður dagana 28. - 30. október næstkomandi. Fjölmargt verður í boði fyrir kaffiunnendur, keppnir í kaffidrykkjum, fyrirlestrar svo eitthvað sé nefnt. |
|
|
|
|
13.7.2010 19:23:26 |
|
Samverjinn
Ákveðið hefur verið að opna eldhúsið í Stýrimannaskólanum fyrir þá sem vilja fá ókeypis hádegisverð. Þetta er gert til að bregðast við því ástandi sem hefur skapast vegna sumarlokana hjálparstofnana.
Verkefnið heitir Samverjinn og að því standa Félag atvinnurekenda, Landssamband eldri borgara og fleiri opinberir aðilar og fyrirtæki.
Opið verður frá hálf tólf til tvö alla virka daga, í tvær vikur að minnsta kosti, en lengur ef þurfa þykir.
Fyrirtæki gefa hráefnið til máltíðanna og sjálfboðaliðar vinna öll störf.
Það er Gissur okkar Guðmundsson sem stýrir þessu verkefni og eru allir félagar KM, jafnt og aðrir sem að hafa hug á að hjálpa til beðnir að hafa samband við kauða.
|
|
|
|
|
2.7.2010 09:24:33 |
|
Viltu fá Kokkalandsliðið í heimsókn til þín?
Viltu fá kokkalandsliðið á æfingu hjá þér og bjóða upp á heitan mat fyrir 110 manns? Bleikja - naut og Súkkulaði að hætti landsliðsins. |
|
|
|
|
30.6.2010 11:32:54 |
|
Matreiðslumaður Ársins 2010
Forkeppni fyrir keppnina um Matreiðslumann ársins 2010 verður haldin þann fimmtudaginn 23. september í Vetrargarðinum í Smáralind. |
|
|
|
|
11.6.2010 10:20:16 |
|
Heiti maturinn hjá Kokkalandsliðinu í prufukeyrslu (Myndasafn)
Í byrjun júní hélt Kokkalandsliðið prufukeyrslu á heita matnum á Dill resturant. Æfingin gekk vel en þetta var liður í því að athuga hvort að maturinn sem landsliðið væri búið að gera sé að virka í keyrslu. |
|
|
|
|
9.5.2010 16:23:49 |
|
Ný stjórn Klúbbs matreiðslumeistara
Á aðalfund Klúbbs matreiðslumeistara sem haldinn var á hótel KEA laugardaginn 8. maí 2010 var kosin ný stjórn. Eftirtaldir aðilar sitja nú í stjórn KM: |
|
|
|